Björg Einarsdóttir er löggiltur sjúkranuddari. Hún útskrifaðist frá Canadian College of Massage and Hydrotherapy í Canada sumarið 1992 og rak síðan eigin nuddstofu þar í 2 ár. Hún stundaði líka nám á öðrum sviðum, tók m.a. Reikimeistarann hjá Lindu Lidke 1994, Multidimensional Intergrative healing hjá Sue Bansen 1992, Svæðanudd 1992 og Aromatherapy 1994. Einnig var hún í þjálfun hjá ýmsum kennurum í hugleiðslu og andlegum málum. Hún var lengst 4 ár hjá Donnu Cheff, Pathway Services í Canada, frá 1990 til 1994.
Meðan á dvölinni í Canada stóð, tók Björg einnig námskeið í stjörnuspeki hjá Dale Osadchuk.
Námskeiðin samanstóðu af praktískri stjörnuspeki og hugleiðslum inná dulræna eiginleikaplánetanna.
Björg var líka 2 vetur í hugræktarskóla Lífsýnar hjá Erlu Stefánsdóttur, veturinn 1989-1990 og síðan sem leiðbeinandi veturinn 1997-1998.
Einnig tók hún hjá Erlu námskeiðin Andleg heilun 1998, Shamanismi I og II og Tengingar og tónar orkustöðvanna árið 1999. Björg fór einnig í gegnum þrjár innsetningar, í Kundalíní Yoga 2000-2002 hjá Guruji Maha Maharishi Dr. Paranjothiyar.
Árið 2006 tók hún þátt í Sacred Journey, námskeiði í Shamanisma með Malku og Barböru Ann Wolf í Perú í Suður-Ameríku.
Námskeið í fyrrilífsheilun með Bandaríska geðlækninum dr. Brian Weiss árið 2007, „Sacred journey“ hugleiðslunámskeið með Barböru Ann Wolf 2008 í Bali Indónesíu, Healing Beyond the Bounds of Reason 2009, námskeið hjá dr. Caroline Myss U.S.A, um sjö dygðir orkustöðvanna og andhverfur þeirra.
Diplóma í stjörnuspeki frá Stjörnuspekiskóla Gunnlaugs Guðmundssonar 2010. Klínísk dáleiðsla frá Dáleiðsluskóla Íslands 20124 og Yoga Nidra 2018.
Björg var reglulega með hugleiðslunámskeið sem hún hafði þróað frá árinu 1992, og einnig Reiki námskeið. Hún starfaði sem sjúkranuddari og kenndi hugleiðslur og Reiki á Íslandi frá 1995.
Björg hefur nú lokað Sjúkranuddstofu Bjargar og stefnir á að koma fyrirlestrunum af námskeiðunum og hljóðupptökum af hugleiðslunum sínum á þessa síðu.